INNLEDNING PROGRAMMENE SPØRSMÅL OG SVAR
Um frjálsan hugbúnað Linux Knoppix Linux og Windows

knoppix penguin

KNOPPIX: TÆKNIN Á BAK VIÐ SNØFRIX


Þar sem Linux er frjáls hugbúnaður, afhverju er það ekki notað af fleirum? Afhverju prófar fólk það ekki að minnsta kosti?

Það er auðvitað rétt að klukkustundir í hverjum degi eru ákveðið margar og ekki eru allir helteknir af tölvunum sínum, en þetta eru ekki einu hindranirnar. Það eru líka tæknilega ástæður fyrir því afhverju svo fáir prófa Linux.

Venjulega aðferðin við að prófa Linux krefst þess að þú setur það fyrst upp á harða diskinn. Þó vel er hægt að setja inn Linux við hliðina á Windows, er fólk sem er óvant uppsetningu hugbúnaðar oft ekki reiðubúið að gera neinar tilaunir.


Knoppix til bjargar

Þýski forritarinn Klaus Knopper er orðinn frægur í Linux heiminum fyrir lausn sína á vandanum sem hræðsla við Linux uppsetningar er. Lausnin hans? Ekki setja upp!

Í stað þess að setja upp Linux, bjó Knopper til útgáfu af Linux sem keyrir af geisladiski og snertir ekki harða diskinn. Tæknin nefnist "live CD" tækni vegna þess að öll forritin keyra af geisladiski. Linux útgafan hans nefnist "Knoppix" og er aðgengileg á internetinu sem frjáls hugbúnaður, sem þýðir að hver sem er hefur rétt til að nota hana og breyta eins og hentar.

Snøfrix er breytt útgáfa af Knoppix, hannað sérstaklega fyrir börn og ungt fólk á öllum aldri. Snøfrix notar sömu grunntækni og Knoppix en hefur annað úrval forrita. Á meðan Knoppix er sérstaklega fyrir forritara og kerfisfræðinga, inniheldur Snøfrix fleiri leiki og margmiðlunar- og uppeldisforrit.

Samantekt: ávinningurinn af "live CD" tækni er að þú getur prófað Linux án áhættu. Skrárnar á harða disknum þínum verða ósnertar. En mundu að ef þú notar ekki harða diskinn, verður þú að finna einhverja aðra aðferð við að vista skrárnar þínar. Annars hverfa allar skrárnar sem þú bjóst til með Snøfrix þegar þú skráir þig út. Ókosturinn við live CD tækni (já, það eru líka ókostir) er að allt gengur hægar heldur en ef öll forritin væru sett upp á harða diskinn.

Ef þér líkar Snøfrix en bölvar hversu hægt það er að ræsa upp, ættirðu að íhuga að setja upp Snøfrix á harða diskinn. Ef þú vilt verða Knoppix og Snøfrix sérfræðingur ættirðu að eyða tíma í að lesa handbækurnar á knoppix.net!